|
9. og 10. apríl 2009 Opið verður á stofunni á fimmtudag og föstudag frá 11.00-13.00 í tengslum við neyðarvakt Tannlæknafélags Íslands. Tímapöntun í síma 512-4810. Í neyðartilvikum um páskahelgina er svo hægt að ná í okkur í tannpínusímann 820 4810. Opnum aftur miðvikudaginn 15. apríl - GLEÐILEGA PÁSKA! :) 29. janúar 2009 Dagarnir 1.-7. febrúar eru helgaðir tannvernd - í ár er áhersla lögð á mikilvægi góðrar munnhirðu og þá einkum notkun á tannþræði daglega. Á heimasíðu Lýðheilsustöðvar er meðal annars nýtt fræðslumyndband um notkun á tannþræði. Hvetjum við alla til að tileinka sér góða munnhirðu! :) 10. og 11. janúar 2009 Opið verður á stofunni á laugardag og sunnudag frá 11.00-13.00 í tengslum við neyðarvakt Tannlæknafélags Íslands. EInnig verður bakvakt á stofutíma vikuna 12.-16. janúar. Tímapöntun í síma 512-4810. 9. janúar 2009 Við höfum gert áframhaldandi samning við Sjúkratryggingar Íslands um ókeypis forvarnaskoðun fyrir 3, 6 og 12 ára börn :) 12. nóvember Við viljum benda foreldrum 3 og 12 ára barna á ókeypis forvarnarskoðun, en tryggingastofnun ríkisins niðurgreiðir það að fullu. Innifalið er skoðun, röntgenmyndir og flúor. Einnig er vert að benda á að þessi samningur milli tannlækna og TR gildir aðeins til áramóta (enn sem komið er). 3. október 2008 Tannlæknastofan Turninn opnaði í dag! Tímapantanir í síma 512-4810. 27. september 2008 Áætlað er að opna í næstu viku :) 20. september 2008 Unnið var hörðum höndum í allan dag við þrif á 14.hæðinni í Turninum. Nú styttist í opnun á tannlæknastofunni! 17. september 2008 Heimasíðan er komin í loftið! :) |